Aðrar mölflugur:
| Adda | Anna Marín | Auður | Beta Rokk | Björt | Bryndís | Brynja Dröfn | Daníel |
| Elsa | Guðrún Ben | Hafsteinn | Hafþór | Harpa | Heiðbjört | Hlín | Inda | Jónína Brá | Karen |
| Lára María | Linda Sæberg | Malla | Marsibil | Ólöfin mín | Ragga Diljá | Símon | Snær | Soffía Tinna | Vallý |


Wednesday, November 30, 2005
das (Bin) Laden er alveg málið!

Ég sver það, afhverju var ég ekki farin að stunda bókhlöðuna fyrir löngu síðan?! Það er svo þægilegt að læra þarna og maður æðir alveg áfram. Ég gleymdi meira að segja að borða í dag því ég var á svo miklu spani í efnafræðinni. Þetta er líka svo fínt að hafa alla hina í kringum sig, allir niðursokknir í bækurnar, þá er maður ekki eins einn í "volæðinu." Ég hef líka hitt alveg fullt af fólki þarna sem ég hef ekki hitt síðan í sumar ef ekki lengra síðan svo ég er vel sátt. Ætla að flytja lögheimilið mitt þangað nú þegar prófatörnin byrjar svo ef einhver vill fá íbúðina mína then it's fine by me!
Get ekki beðið eftir að fara heim í jólafrí! Hitta Túngötufólkið og knúsa Tinu Turner í tætlur. Fáskrúðsfjörðurinn fyllist aftur af fólki sem verður alveg magnað að fara að tjútta með aftur. Spurning hvar partýstaðurinn verður nú þegar Hótelið er lokað......? Var að frétta að það væri verið að taka allt húsið heima í gegn og að þvílíkar breytingar væru komnar núna svo ég er mjög spennt að sjá útkomuna. Svo til að stytta tímann í heimför ætla ég að kæfa mig í bókum og vera massadugleg í próflestri.
Milklu fargi var létt af mér í dag þegar ég kom fjármálunum mínum loksins í gott stand. Var að gera upp ferðina út og sá að ég hafði ekki eytt jafnmiklu og ég hélt. Sá að hringurinn minn var ekki aaaalveg jafn viðurstyggilega dýr og ég hafði haldið svo ég vel sátt við það. Finnst líklegt að ég komist af næstu önn líka án námslána, en ég ætla líka að reyna að bæta við mig vinnu, fara svona helgi og helgi austur á fjöllin sem gefur mér líka tækifæri til að kíkja heim oftar svo það er ekkert nema gott mál.

Æj ætla að skreppa út á smá rúnt áður en So you think you can dance byrjar. Ég er með gríðarlegan soft spot fyrir 2 guttum í þessum þáttum svo ég má ekki missa af einum einasta þætti! Ef ég ætti eina ósk þá væri það að dansa við þá villtan tangó fram í rauðan dauðan, já báða í einu helst! ;)

Mth1-out!   

Ældi þessu út úr sér kl. 8:46:03 pm

Maggý
December 5, 2005   08:59 PM PST
 
uss ég sver það, þetta lið! Maður skilur þau eftir í sveitinni eins og eitt misseri og þau verða bara spinnigal! Hefuru enga stjórn á þessu þarna heima?! ;) En það styttist óðfluga í jólafrí...þangað til ætla ég að láta eins og óð fluga.....heeeeeheeeeeheeee, fimmaura brandari frá helvíti en ég veit að þú fílar þá!! Hringdu við tækifæri-slúðrum aðeins!
Brynja
December 5, 2005   08:11 PM PST
 
Já það eru miklar breytingar heima skal ég segja þér.. þau gömlu eru komin með kaupadellu nr 1 en það er orðið rosalega flott heima.. það eru konar hurðir fyrir niðri þannig að nú getur maður loksins skellt hurðum þarna niðri þó að maður hafi örugglega gert tilraun áður að skella.. En farðu að koma þér austur kjelling
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments







Previous Entry Home Next Entry
Ég og eina fjallaljónið á Íslandi, Tína Turner


And I heard, as it were, the noise of thunder: One of the four beasts saying: "Come and see." And I saw. And behold, a white horse....And I heard a voice in the midst of the four beasts, And I looked and behold: a pale horse. And his name, that sat on him, was Death. And Hell followed with him.


[ Sign my Guestbook ]



Lagið sem ég "ætlaði" alltaf að semja... :

S.o.a.d. - Hypnotize


að skoða síðuna



<< November 2005 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30






   







Myndir





Annað stöff
blog.central.is/maggy
Vélin
H-fleygur
Heima er best
Kind vikunnar
Kvikmynd.is
Apple Trailers
húmor.is
abc.is
Batman
Verahvergi.is




Radíó
XFm
X-ið
Rás 2




Leit







If you want to be updated on this weblog Enter your email here:

rss feed