headphones.....höfuð-símar??!
jæja, Kempan loksins komin á heimaslóðirnar-Kárahnjúkarnir mínir standa alltaf fyrir sínu. Kom hingað uppeftir í fyrradag eftir að hafa skellt mér á eitt stykki dansiball í Egilsstaði kvöldinu áður. Ballið var bara fínasta skemmtun og ekki búið fyrr en um half 5 held ég. MInnir að ég hafi dansað mest allt ballið með bindi um hausinn eins og rambó en ég efast ekki um að það hafi farið vel við pinnahælana og bling-blingið, alltaf svo mikil lady! Svo vill nú svo skemmtilega til að ég hef eitthvað náð að slasa mig, vaknaði allavega með BLÁAN hægri upphandlegg (ég hef aldrei á ævi minni séð jafn stóra marblettaklessu), bólgið bak og önnur ristin á mér er helblá á nokkrum stöðum. Þeir sem geta útskýrt hvaða stunt ég hef verið að taka þarna, vinsamlegast hafið samband-ég get það allavega ekki! Ég vil svo tilnefna Brynju partýpinna kvöldsins-hún var alveg með'ða þetta kvöldið.
Anyway....var mætt upp í the hnjúks í fyrradag og hunskaðist til að klára greinina um Indlandsferðina. Eftir það hefur lífið bara verið ljúft hér. Það er afskaplega rólegt hérna núna og eitthvað lítið um action á skrifstofunni. Fengum reyndar alveg furious veður hérna í fyrrakvöld, mér var eiginlega vaggað bara í svefn af spinnigal rokinu sem dundi úti. Annað lítið bitastætt búið að gerast. Jú sá að ég er loksins komin í e-a áfanga fyrir næstu önn. Brillinn hún Maggý sá það á jóladagskvöldi að hún væri ekki skráð í neina áfanga fyrir næstu önn (þrjú rokkstig fyrir mig) svo ég sendi ótrúlega hjartnæmt og fallegt email á nemendaskránna sem hefur greinilega virkað. Finndist ekkert furðulegt ef þau væru ennþá að berjast við táraflóðið eftir að hafa lesið mailið, það var svo einlægt. En eitthvað ætla einkunnirnar að láta standa á sér fyrir önnina sem var að líða. Dreymdi í nótt að ég hefði fallið í öllum áföngunum sem ég tók þessa önnina, fékk t.d. 7/2 í einkunn fyrir aflfræði-nokkuð furðuleg einkunnagjöf en mér er nú ekkert sama að ég hafi verið að dreyma þetta. En ég var svo sem líka að berjast við gulan fairytale-dreka, með bauju eina að vopni, á sjómannadegi heima í þessum draumi svo ég tek þessu nú öllu með fyrirvara.
Já bara 2 dagar í áramót, úúúú hvað ég get ekki beðið! Ég myndi segja að ég væri töluvert meira áramótabarn heldur en jólabarn enda eru þau haldin með pompi og prakt í familíunni. Það er búið að vera að safna í flugeldasjóð allt árið (já, við erum pínulítið kreisí þegar kemur að þessum rakettum) og er upphæðin sem verður sprengt upp orðin fáránleg. Gegnum árin höfum við stórfjölskyldan alltaf haldið vel öflug partý á þessum tímamótum og eru sumir að missa sig í undirbúningnum fyrir þetta árið. T.d. er búið að græja bjórkúta og dælu fyrir kvöldið......en það gagnast mér svo sem ekki þar sem ég drekk ekki..... .
Hei já, búðin hjá Ítölunum er opin núna, ætla að skjótast smá rúnt í sjoppuferð og tjékka á stemmaranum á IGL skrifstofunni. Blogga líklegast ekkert fyrr en á næsta ári svo
gleðilegt nýtt ár klemmurnar mínar!!!!
mth1
Ældi þessu út úr sér kl. 9:16:17 am
 |  |  |
Didda January 15, 2006 05:20 PM PST
Takk fyrir síðast...!!! ;)
Farðu svo að blogga! |
 |

 |  |  |
Maggý January 7, 2006 10:20 AM PST
já sömuleiðis Lola mín!!!! ;) það verður svooo gaman að hitta ykkur allar á mánudaginn að ég á erfitt með að hemja mig. tel niður mínúturnar! |
 |

 |  |  |
Lára María January 6, 2006 02:16 PM PST
Gleðilegt árið mín kæra:) Sjáumst á mánudaginn eitursprækar!:D |
 |

 |  |  |
Maggý January 6, 2006 12:56 PM PST
gleðilegt nýtt ár sömuleiðis! jú mín er mætt í borg óttans, gat ekki beðið lengur eftir að fá að svitna duglega með öllum Jónunum og Gunnunum í klassanum-unaðslegt ;) Hlakka til að sjá þig á mánudaginn!! |
 |

 |  |  |
Kristín January 5, 2006 03:46 PM PST
Gleðilegt nýtt ár Maggý mín ! Frétti reyndar að þú værir komin stórborgina. Það sást til þín að í World-class á ókristilegum tíma, það er bara eins og þú hafir aldrei farið austur. Sjáumst á mánudaginn. |
 |

 |  |  |
Maggý December 29, 2005 06:23 PM PST
újá vonandi, það að ná væri bara flott. Góða skemmtun sömuleiðis og sjáumst eiturhressar í janúar 2006 :) |
 |

 |  |  |
Þóra December 29, 2005 06:10 PM PST
Skemmtilegur draumurinn um einkunnirnar og drekana ;) Þetta er bara tákn um það að þú hafir rúllað þessu upp. Góða skemmtun um áramótin og sjáumst á næsta ári. |
 |