ohmygodohmygodohmygodohmygodohmygod....
ef einhvern tíma hefur verið ástæða til að fara til Svíþjóðar!
Whitesnake spilar á Sweden Rock Festival í sumar!
Goðsagnarhljómsveitin Whitesnake hefur staðfest þátttöku sína á heljarmikilli rokkhátið sem fram fer í Sölvesborg í Svíþjóð í sumar undir nafninu Sweden Rock Festival. Hátíðin fer fram dagana 8.-10.júní og verður margt athyglisverðra hljómsveita í sviðsljósinu. Auk Whitesnake má nefna sveitir á borð við Deep Purple, Journey, W.A.S.P., Krokus, The Jeff Healy Band, Stryper, Molly Hatchet og George Thorogood & The Destroyers.
Þessi þátttaka Whitesnake verður að teljast vatn á myllu skipuleggjenda hátíðarinnar, en David Coverdale og félagar hafa látið heldur lítið fyrir sér fara síðustu misserin. Hljómsveitin stóð í fylkingarbrjósti bresku rokksveiflunnar seint á síðustu öld, svona um það bil sem mýktin fór að gera vart við sig í þungarokkinu, og nýtur enn þann dag í dag talsverðra vinsælda.
Ekki má gleyma því að Whitesnake hélt eftirminnilega tónleika í Reiðhöllinni í Víðidal fyrir nokkrum árum, spilaði þá tvö kvöld í röð en David Coverdale gekk hins vegar ekki heill til skógar og kom ekki fram á síðari tónleikunum. Gítarhetjan Steve Vai lagði þá helmingi meira á sig það kvöldið, auk þess sem Pétur heitinn Kristjánsson söng með Whitesnake og gerði kvöldið algjörlega ógleymanlegt.
ég hef ekki getað lært síðan ég sá þetta-er að skoða flug til Sverige, as we speak. þarf að fara að leggja hausinn í bleyti - það verður annað hvort borgin sem kennd er við Sölva eða Roskilde í sumar, klárt mál!!!!