Aðrar mölflugur:
| Adda | Anna Marín | Auður | Beta Rokk | Björt | Bryndís | Brynja Dröfn | Daníel |
| Elsa | Guðrún Ben | Hafsteinn | Hafþór | Harpa | Heiðbjört | Hlín | Inda | Jónína Brá | Karen |
| Lára María | Linda Sæberg | Malla | Marsibil | Ólöfin mín | Ragga Diljá | Símon | Snær | Soffía Tinna | Vallý |


Monday, February 13, 2006
the broken rib

já það er ýmislegt sem mér tekst nú að gera til þess að "krydda lífið og tilveruna." Sjúkrasaga mín er ansi gott dæmi um það. Í þau skipti sem ég hef brotnað þá hef ég náð að gera það aaaalveg sjálf-hef ekki getað kennt neinum öðrum um það. Fyrst náði ég að tábrjóta mig eftir leik við Val í 4. flokki kvenna minnir mig. Það var innanhús-Austurlandsmót heima minnir mig. Við gerðum jafntefli við Val og ég var svo brjál yfir því að eftir leikinn dúndraði ég í battann með þeim tilþrifum að ég tábraut mig og það blæddi inn á lið eða eitthvað svolleis. Ég fattaði það reyndar ekki fyrr en eftir að mótið var búið. Svo náði ég að fótbrjóta mig í leik í 3.fl. kvenna. Vorum að spila við Huginn held ég. Þá steig ég eitthvað svo vitlaust niður að ég braut mig í kringum ökklann. Núna hefur mér tekist að bæta enn einu afrekinu við. Ég er búin að vera ansi veik og slöpp núna í 3 vikur og því hefur fylgt mikill hósti.....reyndar svo mikill að ég rifbeinsbraut mig í einu hóstakastinu síðasta föstudagskvöld/nótt!! Ég reyndar fattaði það ekki strax, en fann samt helvíti mikið til neðarlega í bakinu á laugardagsmorguninn. Skrapp samt í gymið og íþróttaskólann og var ekki alveg að meika það að leika við krakkana. Var einmitt að ræða það við Guðrúnu og Maríu í skólanum á laugardaginn að ég hefði örugglega hóstað svo mikið að ég hafði tognað. Um kvöldið var svo aðeins skroppið út á lífið-stelpupartý hjá 2. árinu í Véla-og iðnaðarverkfr.-og var markmiðið þar að drekka nógu ansk...mikið til að deyfa verkinn út af  "tognuninni." Spunk-skotflaskan hennar Þóru reyndist vera lifesaver í því....! Í gær ákvað ég svo að skreppa á læknavaktina og láta athuga þetta betur og neinei, þá er þetta bara svona gríðalega fallegt rifbeinsbrot. Svo nú lítur allt út fyrir að ég eigi eftir að vera algjör heimalingur og úða í mig verkjatöflum eins og skittles.

Þessi dæmasaga sýnir það og sannar að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi....og jafnvel þótt hann sé það ekki.....

 


Ældi þessu út úr sér kl. 10:38:01 am

Olla
February 25, 2006   10:48 PM PST
 
Sæl sæl sæta jæja það er alveg magnað að þú ætlir að kíkja með mér út næstu helgi ég.. Eða allavega á þessa tónleika.. Þetta eru tónleikar með Túpilökunum og alveg hreint pura snilld.. æji ég leyfði ykkur Betu að hlusta á þetta uppí Kárahnjúkum. En Knútur er að fara að spila með þeim. En við komum á fimmtudagsnóttina suður og ég verð í bænum á f0studaginn en svo ætlum við að kíkja í Grindavík.. En við verðum bara í bandi þegar nær dregur..
Hafðu það gott sæta sæta.. Love ya Olla
Maggý
February 24, 2006   05:46 PM PST
 
já það má svo bæta því við að ég brákaði annað rifbein vikunni eftir það fyrsta-LÍKA í hóstakasti. svo í stað fyrir að vera á ættarmóti, rokksjóvi á Broadway og snarvitlausu austf.partýi þá lá ég á bráðamóttökunni með morfín í æð-reyniði að toppa þetta!!! Er búin að vera á brjál lyfjakokkteil og sterapústi síðan svo ég er öll að koma til. Þetta er lífið!
Maggý
February 24, 2006   05:43 PM PST
 
elsku ollan mín, já við eigum sko deit þessa helgi. ég er að fara á árshátíð 3. mars (BRJÁL PARTÝ) en svo er ég öll spennt fyrir slísí tjútti 4.mars-við getum fagnað því að múttí á afmæli ;) og ég held að ég viti hvaða tónleika þú ert að tala um svo ég segi bara common common common, love is all over me....dí brings back memories!!!!! heyrumst þegar nær dregur my love!!
Olla
February 23, 2006   11:55 AM PST
 
Jahh nú veit ég ekki..
Hvar???
Lindan
February 22, 2006   03:38 PM PST
 
aaaaahahahahahha... :D

þú afsakar elzkan mín en ég er bara með svo svart hjarta að ég get ekki annað en hlegið... :D en það verður að segjast að enginn nema snillingur eins og þú getur þetta... :D
Snæjarinn
February 21, 2006   05:33 PM PST
 
Hehe já ég er sammála ég kenni allaveganna öllum öðrum um en sjálfum mér og vænti ég þess að þú gerir það líka ;)
Olla getur verið að ég hafi séð þig einhverntímann um daginn??
Olla
February 21, 2006   01:42 PM PST
 
Hæ hæ Sæta sæta!!
Vá hvað ég hef saknað þín svakalega mikið.. Ég var að skoða myndir síðan við vorum uppí Kárahnjúkum (djammmyndir sko) og vá hvað ég sakna þín alveg svakalega.. Umm það á ekki að slíta fóstursystur svona í sundur;) en jæja við ætlum að koma suður 3.mars og ég var að vona að þú værir ekki buzy því mig langar svo mikið að hitta þig og fá þig með mér é tónleika líka svakalega skemmtilega tónleika;) en anyway ég ætla ekki að fara að fylla allt blaðið út hérna en við verðum bara í bandi þegar nær dregur:) Tata sæta og leiðinlegt að heyra þetta með rifbeinsbrotið en vá hvað þú ert nú mögnuð að geta brotið það svona, Það er eins gott að þú hnerraðir ekki;) hehe sjáumst
Maggý
February 14, 2006   02:46 PM PST
 
já ef væri flett upp orðinu seinheppni og klaufi þá held ég að nöfnin okkar komi þar einhversstaðar við sögu. Svo kenni ég gróðurhúsaáhrifunum og hækkandi gengi krónunnar um rifbeinsbrotið-allt hefur sínar ástæður sjáðu til! ;)
Snæjarinn
February 14, 2006   01:30 PM PST
 
Jæja það þó til fleiri klaufar en ég :)En það er svo sem ekki hægt að kenna klaufaskap um síðasta brotið!
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments







Previous Entry Home Next Entry
Ég og eina fjallaljónið á Íslandi, Tína Turner


And I heard, as it were, the noise of thunder: One of the four beasts saying: "Come and see." And I saw. And behold, a white horse....And I heard a voice in the midst of the four beasts, And I looked and behold: a pale horse. And his name, that sat on him, was Death. And Hell followed with him.


[ Sign my Guestbook ]



Lagið sem ég "ætlaði" alltaf að semja... :

S.o.a.d. - Hypnotize


að skoða síðuna



<< February 2006 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04
05 06 07 08 09 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28






   







Myndir





Annað stöff
blog.central.is/maggy
Vélin
H-fleygur
Heima er best
Kind vikunnar
Kvikmynd.is
Apple Trailers
húmor.is
abc.is
Batman
Verahvergi.is




Radíó
XFm
X-ið
Rás 2




Leit







If you want to be updated on this weblog Enter your email here:

rss feed