Aðrar mölflugur:
| Adda | Anna Marín | Auður | Beta Rokk | Björt | Bryndís | Brynja Dröfn | Daníel |
| Elsa | Guðrún Ben | Hafsteinn | Hafþór | Harpa | Heiðbjört | Hlín | Inda | Jónína Brá | Karen |
| Lára María | Linda Sæberg | Malla | Marsibil | Ólöfin mín | Ragga Diljá | Símon | Snær | Soffía Tinna | Vallý |


Tuesday, November 22, 2005
Gooooood times.....

Búin að sitja inn skrilljón og tvær tylftir af myndum frá Indlandinu, allt komið undir mynda session-ið til hægri. Tíminn á myndunum er skv. GMT en bætið bara við 5 og hálfum tíma og þá fáiði actual Indian time. Ég vildi óska að þið höfðuð öll getað upplifað þetta með mér, þetta var bara einum of gaman.

er þotin í heimsókn, guddnæt!

Ældi þessu út úr sér kl. 8:08:00 pm
|úúú bara 2 kvikindi!|  




Monday, November 21, 2005
örsmá ferðasaga

jæja, ég ætla að reyna að segja frá Indlandsferðinni í stuttu máli.
Eins og ég var búin að segja hér áður þá var námskeiðið bara snilld. Ég lærði ekkert smá af þessu og kynntist fullt af yndislegu fólki. Fólkið kom frá Noregi, Finnlandi, Danmörku, Englandi, Indlandi, Austurríki og Þýskalandi. Námskeiðið var byggt upp af fyrirlestrum og gerðum við nokkur hópverkefni inn á milli. Einnig voru kynnt fyrir okkur 2 af þeim verkefnum sem voru komin í úrslit í International Project Management Award 2005. Síðasta daginn stofnuðum við svo sér Young Crew Management Board innan IPMA sem mun hér með sjá um starfsemi þeirra sem eru í IPMA og eru yngri en 35 ára. Einn frá hverju landi á sæti í þessari nefnd og gerðum við 12 mánaða áætlun um það hvað við ætluðum að reyna að afreka á þessum tíma, t.d. að finna út/jafnvel stofna svona Young Crew samtök í okkar löndum, fá hin 27 löndin, sem eru í IPMA, til að taka þátt í þessu og fá fleiri meðlimi innan hvers lands. Ég var einnig sett í nefnd með fjórum öðrum til að skipuleggja næsta Young Crew Workshop sem verður haldið samfara Heimsráðstefnu IPMA sem verður haldin í Október á næsta ári......í Shanghai í Kína!!!!! Þetta er rosalega spennandi verkefni sem ég get ekki beðið eftir að byrja á. Við hittum Kínverska hópinn sem er að skipuleggja heimsráðstefnuna 2006 og byrjuðum aðeins að miðla okkar hugmyndum til þeirra. Auk þess bætist við 1-2 frá Kína við nefndina sem Kínverjarnir velja og eftir það fara hljólin líklega að snúa á fullu. Já, spennandi tímar framundan bara......að mínu mati allavega :)
Síðasta dag námskeiðisins var haldin voða flott lokahófsveisla þar sem boðið var upp á meiri veislumat og opin bar. Eftir það var svo kíkt aftur á djammið (höfðum aðeins skellt okkur á lífið kvödið áður) og var haldið á Indverskan klúbb eins og þeir gerast bestir. Í stuttu máli var þetta baaara skemmtilegt kvöld, Indversk klúbbalög eru bara að gera góða hluti. reyndar er alveg merkilegt að það má ekki selja fólki yngra en 25 ára áfengi í Indlandi en maður slapp reyndar við allt svoleiðis vesen. Held að þeir séu aðeins easy on the tourists. Daginn eftir námskeiðið tók ég smá Tuk tuk túr um borgina, ferðaðist eiginlega bara á milli skartgripaverslana sem gaf af sér kaup á hring sem var eiginlega allt of dýr en hann hefði kostað ca. 4xmeira hér á landi svo ég reyni að réttlæta kaupin á þann hátt. Seinna um daginn voru Íslendingarnir mættir og fór ég með Yrsu og co. á setningarhátíð heimsráðstefnunnar. Ráðstefnan stóð í 4 daga og voru 1300 manns sem komu á hana frá öllum heimshornum. Á daginn var svo aðeins kíkt í búðir, bara svona upp á coolið. Keypti mér t.d. Sarí og alveg gullfallegt rúmteppi-húsfrúin er aldrei langt undan í innkaupaferðunum. Ég keypti mér líka fyndnustu skó í heimi, þeir eru með svona risa Aladdín tá sem fer í hring-hriiikalega flottir hehee. Karlmansskótíska á Indlandi er náttúrulega bara í heimsklassa. Öll kvöld ráðstefnunnar var svo rosaveislur með besta mat í heimi og opnum bar, Indverski bjórinn Kingfisher og G&T eru orðnir mínir bestu vinir eftir þetta ævintýri. Síðustu 2 daga ráðstefnunnar ætlaði ég aldeilis að fara og taka myndir af því helsta í Dehli en þá vildi nú ekki betur til en ég fékk matareitrun. Einhvers staðar hefur besti matur í heimi ekki verið að gera sig og lá ég alveg í rúminu næstum 2 daga. Kvalirnar sem fylgdu þessu eru þær skelfilegustu sem ég hef upplifað á ævinni, ég hreinlega öskraði af verkjum. Ofan í þetta fékk ég hitakast o.fl. sem var ekki að bæta líðanina. Svo þessir 2 dagar fóru aðallega í svefn og sjónvarpsgláp, Indverjar með merkilega mikið af bandarísku sjónvarpsefni og þeir eru meira að segja komnir muuuun lengra í glæstum vonum heldur en Ísland. Ridge Forrester, eða Ronn Moss eins og hann heitir víst, er það mikið goð í Indlandi að á klst. fresti poppaði upp auglýsing um að hann væri að fara að koma og halda tónleika í Indlandi (jújú, kallinn kann bara að syngja og alles). Síðasta kvöldið druslaðist ég þó í lokahóf ráðstefnunnar til að kveðja Young Crew gengið sem var enn á staðnum, taka nokkrar group shots o.fl. 
Jææææææja, næsta dag var lagt af stað í brjálaða för, kölluð "the golden triangle."  Ég mæli eindregið með þessari ferð fyrir alla sem eiga einhvern tíma eftir að fara til Indlands. Fyrsta daginn fórum við til borgarinnar Agra að skoða Taj Mahal. ég held að það hafi verið hápunktur ferðarinnar. Þetta er svo mikið meistaraverk að það hálfa væri nóg. Sagan á bakvið höllina er mjög heillandi og ótrúlegt að koma inn í hana og sjá actually kistuna þar sem drottningin hvílir. ég vona að ég nái að setja inn myndirnar af þessu svo þið sjáið hvað ég er að tala um. Þó mátti ekki taka myndir inn í henni eins og á fleiri stöðum í þessari ferð. Þennan dag fórum við í ferð um Red Fort o.fl. og ætla ég að láta myndirnar enn og aftur tala sínu máli. Í Agra gistum við á flottasta hóteli sem ég hef nokkurn tíma komið á, lúxus út í eitt. (svona upp á fánýta fræði, þá eru líka Hilton og Sheriton hótel í bænum-ekkert slor hér á ferð!) Næsta dag var ekið til Jaipur-bleiku borgarinnar, kastalar skoðaðir og yfirgefnar borgir. Ótrúlega flott!! Meðan Íslendingar voru rétt að fatta að það væri hægt að búa til þök úr þúfum þá voru þessir kóngar að búa til þvílík listaverk-enn og aftur, myndir koma inn. Við fórum líka inn í skartgripa verksmiðju þar sem demantar og aðrir eðalsteinar lágu í hrúgum, hefði alveg verið til í að fá eins og eina lúku af þeim með mér heim! Við gistum rétt fyrir utan Jaipur í gömlum kastala sem var nú notað sem hótel og safn. Reyndar voru öll herbergin uppbókuð svo við gistum í tjöldum í garðinum! Þegar ég segi tjöld þá er ég ekki að meina 4 manna kúlutjöldin heldur voru þetta risastór hvít svona nýlendutjöld, parket-og flísalögð með baðkari, klósetti og bara öllu. SAMT SEM ÁÐUR var ég ekki nógu sátt þar sem framandi skordýr (já eða bara skordýr yfir höfuð) og ég eiga engan veginn saman! Ég svaf mjög lítið þessa nóttina, let's just leave it with that.
Síðasti dagur ferðarinnar fórum við í fílaferð upp að miklu kastalavirki sem er með ótrúlega fallegu útsýni yfir borgina. Þar eru heilu herbergin með útskornum veggjum, alsett speglum o.fl.-hreint út sagt ótrúleg sjón. Einnig sáum við hina fljótandi höll og the palace of winds-myndir segja allt sem segja þarf. Síðast skoðuðum við stjörnuskoðunar-garð, þar sem reist voru rosaleg sólarúrs-mannvirki og hægt að sjá stöðu tunglanna út frá stöðu sólar o.fl. ég er að tala um Risastór sólarúr-því miður á ég ekki myndir af því þar sem ég var ekki með pening til að borga "gjaldið" en ég vona að ég fái myndir frá þessum stað sendar sem fyrst frá hinum. Eftir þetta var keyrt aftur til Dehli. Þar hélt ég að biði mín notalegt hótelherbergi en neinei, gæjarnir hafa eitthvað klikkað í bókununum svo ég og Hildur, kona frá Landsnet, vorum nokkurn veginn á götunni. Sem betur fer fengum við að crasha hjá öðrum Íslendingi í þessa 3 tíma sem við höfðum þangað til við þurftum að leggja í heimferð. Eftir þessa 3 tíma var ég vakandi í rúman sólarhring, eða þangað til ég komst heim á Þórðarsveiginn núna síðustu nótt. Maður var alveg illa steiktur ferðalangur í fluginu frá London og til Keflavíkur. Þetta var bara allt eitthvað svo mikið stress á leiðinni heim að ég náði ekki að sofna í flugunum. Í London hafði ég svo það góðan tíma milli fluga að ég náði að skreppa í downtown London og versla mér Ipod nano (looooooksins) og jólafötin svo ég er heldur betur sátt með þann "detour." Í Keflavík biðu svo Anna og Robbi eftir mér og skutluðu mér heim að dyrum á nýja kagganum sínum, ljúfur endir á þessu ævintýri. 
Svona var þá Indlandsævintýrið í mjöööög stuttu máli. Ég er pottþétt að gleyma alveg fullt af hlutum sem mig langar til að segja ykkur frá en það rifjast kannski upp þegar ég fer að skoða myndirnar aftur, allir velkomnir í heimsókn til að fá Indverska stemmingu beint í æð. Verð líka að fara að leita mér að Indverskum kokkabókum einhversstaðar, ég er strax farin að sakna matarins.

Er orðin alveg örmagna af þreytu svo ég held að ég ætli að fara að skunda upp í rúm, fyrir mér er mið nótt núna svo verð ekki lengi að lognast út af á eftir.

nighty night... 

Ældi þessu út úr sér kl. 8:11:07 pm
|úúú bara 2 kvikindi!|  

ísland er land þitt......

sem ALDREI ég gleymi!! Kom heim í skítakuldann og snjóinn í nótt og er afskaplega sátt með það. hef ekki upplifað betri tilfinningu en að leggjast í rúmið mitt í nótt og sofa eftir allllllllltof langa vöku. Hef ekkert náð að blogga í ferðinni en ætla að reyna að spæna inn ferðasögu í kvöld. Þar er nú af nógu af taka, t.d. matareitrun, fílaferð, Taj Mahal (oh my gooooood), djamm, og ástæða þess að ég sé 90% að fara til Shanghai á næsta ári (jeeeeei). Tók um 400 myndir í ferðinni sem ég ætla að reyna setja eitthvað af inn á. Vona að ég nái að aðlaga þennan tímamismun sem fyrst svo ég geti farið að byrja að læra helst eftir korter!! Dííííí þar bíður manns mikið verk held ég.

Ætla að fara gera mér hafragraut, það verður klárlega hátíð í bæ.

Já Vallý, ég fjárfesti mér í Best of disknum með Daler Mendhi, ndverskum rappdisk og soundtrackinu úr heitustu Bollywood myndinni (þ.e. ef ég hef ekki gleymt honum), auk þess sem ég lærði nokkur útpæld indversk dansspor, þú ert meira en velkomin í músíkhorn í Þórðarsveiginn anytime!!!!!! :)


Maharajah Maggy

Ældi þessu út úr sér kl. 10:02:24 am
|úúú bara 2 kvikindi!|  




Friday, November 11, 2005
snilld!!!!!

saelir!
adeins ad updeita hvar eg er stodd i heiminum. Kom til Indlands i fyrradag kl. 11 um kvoldid....var reyndar ekki komin a hotelid fyrr en 3 um nottina tvi eg er alveg snillingur i ad lenda i brasi, fyrir utan tad ad teir hafa orugglega verid ad nota fugla til ad afferma velina og henda toskunum a faeribandid. Anyways, fekk ekki mikinn svefn tar sem eg turfti ad vera voknud kl. 6 til ad fara a namskeidid. Vid erum ca. 50 a namskeidinu fra ollum heimshornum, ca. 30 indverjar og 20 utlendingar. Eg er vist langyngsti spadinn i hopnum og t.a.l. minnst skolagenginn, her eru allir indverjarnir einhverjir Doctorar og professorar, eda eru ad taka eitthvad nam ofan a verkfraedina hja ser. En tetta er alveg hrikalega skemmtilegur hopur. Tad vill svo skemmtilega til ad tad eru 2 danir og 1 nojari a hotelinu minu sem eru a namskeidinu og hofum vid bara tengst blodbondum. To eg tali ekki um tjodverjann sem er her lika. Hann er Chairman yfir IPMA samtokunum og svona lika hress pinni, eg er farin ad hallast ad tvi ad tar sem eru tjodverjar, tar eru klarlega party! I gaerkvoldi for eg i Indverskt nudd sem var bara himneskt, fyrir utan tad ad tad kostadi rett um 980 ISK kr.-sem er bara ekki neitt! Forum vid svo oll ut ad borda tar sem tessi tjodverji einmitt for alveg a kostum...eda vorum vid bara ordin svona helv kennd af indverska bjornum??? Nei tetta var orugglega tjodverjinn!
Nuna er klukkan 5 min i atta ad morgni og tarf eg ad fara ad koma mer i bilinn sem keyrir okkur a namskeidid.
Afsakid hvad tetta er leidinleg faersla, er a ansi mikilli hradferd og er bara ad pudra e-u ut ur mer. Lifid herna er toluvert odruvisi midad vid Island, umferdin er eitthvad sem eg skil bara ekki-ef menn vilja finna ahaettuleikara i Rallymyndir, ta eiga indverjar alveg bretti af teim! Tetta er alveg one of a kind lif herna og taeki tad mig orugglega viku ad skrifa um tad sem eg er buin ad upplifa a fyrsta deginum! Svo nakvaem ferdasaga fra a til o verdur sogd tegar eg kem heim. Oh men, billinn kominn svo tangad til naest, verid stillt og eg bid kaerlega ad heilsa a Islandid. er jafnvel bara pinu spennt ad koma heim.....en bara pinu :)

Ældi þessu út úr sér kl. 1:33:53 am
|úúú bara 3 kvikindi!|  




Tuesday, November 08, 2005
giggidy giggidy gigg....

góða kvöldið! Langt síðan ég hef þrusað niður e-m línum hérna enda hefur allt verið á suðupunkti. Alveg nóóóóóóg að gera áður en ég fór út. Er núna komin til London og sit hér á hótelinu á náttfötunum og með einn ískaldan Erdinger við höndina. Sweeeeet! Smá hnökrar urðu á ferðinni svona til að byrja með, smá vesen við að komast til Keflavíkur, taskan mín er ónýt og svona EN það held ég að sé bara tákn um gott ævintýri. Svo þarf ég víst að vakna kl. 5 í nótt og þruma mér á völlinn aftur og fljúga til Indlands. Verð komin þangað eitthvað eftir miðnætti á staðartíma. Svo ég ætla að láta þetta gott heita í bili, bara að láta vita af mér svo sumir fái ekki hjartaáfall af áhyggjum :)

Heimsborgarinn kveður (úúú spurning um að skella sér niður í bæ og fara að "djakka".....Iceland Express-BARA fyndnar auglýsingar!)

já by the way,
bara svona að gefa ykkur nýjustu veðurfregnir af New Dehli: Hitinn næstu 5 daga: 29-33 unaðsleg stig........."svekkjandi!" :)

Ældi þessu út úr sér kl. 8:08:46 pm
|úúú bara 2 kvikindi!|  




Wednesday, November 02, 2005
2 nóvember 2005

var að koma frá miðilslækninum áðan. Var ca. 100 ár að finna Vesturbergs-götuna þar sem læknirinn var en anywho, ég er ekki frá því að mínu lífi hafi verið bjargað í dag, að öllu gríni slepptu. Það verður glæný Maggý sem vaknar upp í fyrramálið. Guðrún, þú átt inni hjá mér ævilangan greiða fyrir að benda mér á hana!

Er hálforðlaus eitthvað og úti á þekju núna en ætla að  gefa ykkur hinum eina ástæðu til að GRENJA ÚR YKKUR AUGUN AF HLÁTRI yfir þessari mynd sem er í boði Carl Jensen og Betu. Believe me, ég kafnaði næstum úr hlátrasköllum í morgun þegar ég sá þetta!!

Maggý, healed!



Ældi þessu út úr sér kl. 3:44:23 pm
|úúú bara 2 kvikindi!|  




Tuesday, November 01, 2005
skúra, skrúbb'og bóna

já er búin að vera að þrífa allt hátt og lágt hérna, enda kannski alveg kominn tími á það. En þegar skrúbb-andinn kemur yfir mann þá er bara um að gera að leyfa honum að njóta sín.
Síðasta færsla mín hér var víst vangaveltur um djammið-það sem maður getur nú velt sér upp úr því hvort maður eigi að fá sér aðeins í tánna eða ekki! Anyway, það endaði allavega með því að ég fór á sálina og sé svo sannarlega ekki eftir því ;) Þeir stóðu alveg fyrir sínu enda var líka þvílíkt crowded-maður gat ekkert verið að gefa upp sitt speis neitt! Svo er það bara eitthvað við lagið Original sem fær mig bara gersamlega til að tapa mér....úúúú, good times. Krissa, Guðrún Ásta og Rakel fá líka sérstakar þakkir fyrir að vera massadjammfélagar þetta kvöldið. Þó úthaldið hafi þó verið hvað best hjá mér og Rakel enda dugði ekkert annað en að tjútta fram að morgunmat eeen maður var svo sem ekki að rísa upp úr þynnku eins og sumir.....! :) Eftirminnileg er taxaferðin úr bænum, því ég tengdist gífurlega sterkum böndum við bílstjóra ferðarinnar-enda svo sem ekki mikið annað hægt að gera þegar verið er að keyra mann út á land (heim til mín). Við allavega leystum lífsgáturnar alveg tvisvar ef ekki þrisvar í ferðinni og heimspekilegri pælingar hafa ekki lekið út úr mínum munni lengi.

Dagarnir framundan verða frekar viðburðaríkir miðað við mitt daglega líf síðustu vikurnar. Það er loksins komið að tímanum hjá lækninum sem ég er alveg 1234% um að leysi allar mínar gátur varðandi martraðirnar. Hei já, og talandi um lækna, Man einhver eftir þáttunum Doctor Quinn á stöð 2 fyrir mörgum árum síðan? hvað ætli the medicine woman sé að gera núna? Hún hefur allavega ekki verið neitt sérstaklega áberandi í kvikmynda-og sjónvarpsþáttabransanum síðan í þessum þáttum. Veit ekki hvernig mér datt þessir þættir í hug en ég man allavega eftir því að mamma mátti ekki missa úr þætti, then all hell would break loose! (nehhhhhh, kidd'í ykkur!)
Á morgun verð ég líka að fara að klára að versla í gjöfina handa "börnunum" mínum í Úganda. Hann Bongomin litli er að verða 8 ára 25.nóvember og ætla ég að senda honum gjöf að því tilefni. Þar sem ég er líka að styrkja systur hans þá ætla ég að senda þeim eitthvað smá líka. Var að skrifa bréfið til þeirra áðan og ég var eiginlega bara hálfklökk við það. Miðað við hvað ég er alltaf tilfinningalaus þá er það bara eitthvað við þessa engla sem vekur eitthvað upp hið innra (nú vantar bara fiðluspil undir þessa frásögn). Allavega það að vita að maður hafi jafnvel verið að bjarga litlum lífum þarna er bara besta tilfinning í heimi. Ég myndi styrkja börn alls 3. heimsins ef ég bara gæti!!!

Einhvern veginn náði Auður að sannfæra mig um að taka þátt með þeim í Fáránleikunum á föstudaginn. Þetta er einn af hápunktunum í félagslífi verkfræðinnar enda keppa þarna lið frá öllum skorum í alls konar fáránlegum keppnum. Öll lið eru í e-m út-úr-kú-búningum og bara stanslaus gleði, er mér sagt. Held að 12 lið séu skráð til leiks núna og ætlum við að koma sterkar inn og taka þessa keppni í r*********! Okkar lið heitir því smellna nafni the Shags, sem er tileinkað Lolu Shag (Láru Maríu), og þemalagið er komið (Lola-the Kinks) og vantar okkur nú bara búningana til að toppa þetta allt. Allar hugmyndir eru vel þegnar!
Já mamma og pabbi eru að koma í bæinn um helgina, djöfull er ég hrikalega spennt fyrir því. Þau hafa ekki komið síðan ég var að byrja að flytja í íbúðina svo það er alveg komin tími á að fara að hitta þau. Þau ætla aðeins að ná að útrétta og svona og ná að hitta mig áður en ég fer út, mamma var einmitt að stinga upp á að við myndum vígja ofninn almennilega með einhverri ljúffengri sunnudagssteik a la mamma. Oh sweeet moses, bara hugsunin um að fá kjöt er alveg að kæfa mig! :)
Síðan eru þau, Anna og Robbi að fara að til London í næstu viku. Eiga þau það svo miklu meira en skilið blessunirnar. Það sem er samt kannski hvað mest merkilegast við þessa ferð að þetta er í fyrsta skipti sem mamma, pabbi og eitthvað af okkur systrunum fara út fyrir landssteinana saman. Alveg ljóst að það var löngu komin tími á utanlandsferð hjá "familíunni" svo þetta er vonandi fyrsta skrefið að stanslausu heimsflakki hjá þeim....vona að ég og Brynja fáum einhvern tíma að koma með samt :)

en talandi um heimsflakk, mín ferð er öll að komast í fastar skorður. Ég flýg semst til London 8.nóv og gisti í London eina nótt. Flýg svo morguninn eftir til New Dehli. Ég er sú eina sem flýg út á þessum tíma frá Ísl. því hinir eru bara að koma á ráðstefnuna. Námskeiðið er svo 10-12 nóv. og verð ég þá á hótelinu með öllu því liði. En þegar Yrsa og þau koma til New Dehli 13 nóv, þá færi ég mig á þeirra hótel sem er ráðstefnu hótelið. Ráðstefnan er til 16 nóv. og the Golden Circle ferðin hefst daginn eftir. Síðan flýg ég heim 20 nóv. Það er reyndar svona nokkur atriði sem ég er ekkert allt of spræk með, t.d. það að ég fór í sprautu fyrir Lifrabólgu A á mánudaginn og það verður ansi tæpt að það verði farið að virka þegar ég fer út. Síðan eru þessar hryðjuverkaárásir ekki alveg að koma á besta tíma. Vonandi verða bara allir hryðjuverkamenn og þessir andspyrnumúslimar/hindúar bara spakir meðan við erum þarna.....já vonandi!

heyrðu kræst, klukkan alveg way past my bedtime! Djöfull getur maður látið móðann mása þegar vel stendur á.

Shubh raatri...

Ældi þessu út úr sér kl. 9:38:56 pm
|úúú bara 3 kvikindi!|  




Thursday, October 27, 2005
titill skitill...

bara aðeins að droppa inn línu hérna. Búið að vera mikið að gera síðustu vikuna í lærdómi og sprikkli. Er að reyna að vinna upp 12 daga frí svona fyrirfram og það þarf aldeilis að halda vel á spöðunum til þess. Held ég að hafi sett persónulegt met í kaffidrykkju á þessum dögum líka sem getur útskýrt hyperactívu taktana mína......fyrir utan þessi vanalegu 6 gr af amfetamíni sem maður fær sér í morgunsárið.... :)
Indland spindland á hug minn allan núna. Já eða bara að fara út í lönd. Er búin að sjá svona skrilljón atriði sem ég ætla að skoða í New Dehli auk þess sem mín var nú ekki lengi að googla upp þessari hrikalega glæsilegu verslunarmiðstöð í borginni.....ég þangað!! En það er líka alveg ótrúlega mikið af flottum byggingum og svona túrista-attractions þarna sem ég verð bara að sjá. Í þessari leit minni virðist ég ansi oft ramba inn á síður hjá erlendum háskólum. Held að ég sé ískyggilega búin að smitast af Láru hvað varðar þetta. Mig langar alveg rosalega að skreppa eina önn/ár til að byrja með. Kynnast einhverju nýju og setja í reynslubankann. Ég hef oft verið talin ansi mikill tækifærisinni svo hver veit hvað maður gerir. Ætla nú samt að leggja allar stórfelldar ákvarðanir undir "æðsta ráðið" á Túngötu 11 fyrst. Sem minnir mig á það að ég er með heimþrá á háu stigi!! :/

Helgin verður bara í rólegri kantinum HELD ég, á morgun á að vera alveg furious veður svo þá er planið að halda bara huggó vídjókvöld. Komnar ansi margar myndir á leiguna sem er algjört möst að fara að sjá. Á laugardaginn er reyndar spurning hvort ég fari með Helgu á Sálina á Nasa. Er farin að sakna sveitaballafílingsins ansi mikið og svo er þetta náttúrulega Sálin! Klikka aldrei. Adda er einmitt að fara að sjá þá í Köben í byrjun nóv. og þá held ég að það sé best að ég, sem góð frænka, verði búin að kíkja á þá núna um helgina, bara svona til að geta sagt henni við hverju eigi að búast.......jiii, það sem ég geri nú ekki fyrir fjölskylduna! ;) eeeeeeeeeen svo hef ég alveg gott af því að slaka á alveg eina helgi svo kannski verð ég bara þarna í anda. Var eiginlega búin að gera díl við sjálfa mig að drekka ekkert fram að jólafríi. Langar til að einbeita mér að skólanum og sprikklinu auk þess sem fjármálin eru ekkert sérlega hrifinn af sukkinu! njehhh þetta kemur allt í ljós/light/lys.... .


vúú djammpælingarnar gáfu af sér þessa massa ritstíflu, svo best að láta þetta gott heita.

farin að googla útlönd,
bleeeeee

Ældi þessu út úr sér kl. 8:35:40 pm
|úúú bara 5 kvikindi!|  




Monday, October 24, 2005
happy birthday to......me!

jább það sem þið lesið er engin lygi, ég var að fá fyrsta "og-ið" mitt í aldur minn í dag-er semsagt tuttugu OG eins alveg upp á dag. Býst við að það þýði líka að ég sé komin á þrítugsaldurinn....úff maður fær bara liðagigt við að hugsa um það, nehhhh segi svona.
Í tilefni af þessum merka áfanga var tekin fjandi góð helgi í stanslausa gleði. Á föstudeginum fóru ég og Adda eiginlega óvart á djammið. Ég var komin upp í rúm og svona bara rétt um hálftíu en þá hringir Adda og spyr hvort sé ekki stemming fyrir að gera eitthvað....það má segja að hún hafi ekki beinlínis þurft að snúa upp á hendina á mér til að fá mig til að kíkja út. Svo við skunduðum í byen eftir ágætis kappdrykkju/fordrykk hér heima. Fórum við á Pravda til að hitta á vini Öddu. Eftir stutta stund var Adda búin að þefa uppi einhverja gaura sem hún sagði að sætu eitthvað svo einmana á borðinu. Við þrusuðum okkur þá við hliðina á þeim sem var bara fínasta hugmynd á þeim tíma því þeir röðuðu í okkur skotunum eisn og þeim væri borgað fyrir það. Þetta fór svona hrikalega vel í okkur að seinna um kvöldið týndu við hvor annarri einhvern veginn og höfum við ekki hugmynd um hvernig það gerðist. Hvenær við fórum heim er líka eitthvað í móðu.......en samt sem áður, gott kvöld!

Laugardagurinn var svo BARA skemmtilegur. Innmælið gekk alveg eins og í sögu og var bryddað upp á ýmsum skemmtilegum atriðum, t.d. Íslenska og FINNSKA þjóðsöngnum (a la Vallý) og voru teknir nokkrir vel þekktir slagarar úr Mary Poppins (a la Vallý líka). Eins og í öllum góðum partýjum kenndu austfirðingarnir í hópnum hinum skvísunum indverska dansatriðið með poppgoðinu Dahler Mehndi. Það svíkur sko engan!! :) Svo var haldið í bæinn þar sem hópurinn splittaðist aðeins fyrst en sameinaðist svo á Hressó þar sem dansinn var stiginn fram á morgun. Ég lærði einnig ýmislegt gagnlegt þessa nóttina, t.d. að kveikja í lófanum á mér. Kennarinn var Stebbi jak og eftir ca. 2345 tilraunir tókst mér actually að kveikja í lófanum á mér. Ég var líka með þennan fína kertakveikjara með mér (ekki veit ég af hverju) svo hann reyndist brýnasta nauðsyn í kennslustundinni. Allavega þetta kvöld var hriiiikalega skemmtilegt og þakka ég öllum þeim sem komu nálægt því. Ég er búin að setja inn myndir frá kvöldinu undir mynda-sessioninu til hægri.

Afmælisdagurinn sjálfur hefur bara verið í rólegri kantinum. Fyrri hlutinn fór í hina dásamlegu aflfræði og svo skelltum við okkur í kröfugönguna í dag. Náðum reyndar ekki að arka alveg niður á Ingólfstorg þar sem litlu námsskvísurnar þurftu að mæta í Málmsuðu fyrirlestur kl. 4. En smsum og símhringingum hefur hreinlega rignt inn með hamingjuóskum í dag svo ég er alveg í skýjunum. Takk kærlega fyrir að muna eftir litlu beyglunni elskurnar mínar!! Þið eruð baaaara frábær!!! :)

Jæja, gestir mættir til mín og ætla að hætta þessu í bili.

þangað til næst, eigiði gott kvöld í tilefni af deginum!!  

Ældi þessu út úr sér kl. 8:43:12 pm
|úúú bara 7 kvikindi!|  




Wednesday, October 19, 2005
Indiaaaaaaaaaaaaaaaa

Ég hef ekki getað hætt að brosa og dansa gleðidans síðan ég fékk mail frá Yrsu í dag. Ég er semsagt að fara til Indlands 8. nóvember!!! Ég flýg til London e-n tíma þennan dag og fer svo þaðan seinna um kvöldið og verð komin til New Dehli einhvern tíma um morguninn 9.nóvember. Young Crew námskeiðið verður svo 10.-12. nóvember. Í framhaldi af því verður heimsráðstefna - Vision to Reality IPMA World Congress - ........og ég fer á hana líka. Auk þess gefst mér þá tími til að skoða höfuðborgina og bralla ýmislegt af Indverskum sið. Ég er víst búin að lofa að læra að tala ensku með Indverskum hreim svo þessir dagar eru alveg tilvaldir í það ;) Ráðstefnunni lýkur svo 16. nóvember.....en þá fer ég í 3 daga ferð sem heitir "Golden Circle." Ég held að þetta sé lestarferð þar sem við skoðum t.d. Taj Mahal o.fl. o.fl. Svo kemur maður aftur heim á klakann 20.nóvember.....úúúúúú ég er svo spennt!!!!! Þetta verður ekkert smá ævintýri með einstöku fólki. Ætla ég að vera alveg einstaklega mikill túristi og taka Indlandið eins og það leggur sig í nösina.....mmmm I can smell it already! :)



hér á ég eftir að standa alveg blísperrt eftir minna en mánuð!!!!


Varð bara að deila þessari gleði með ykkur. Reyndar er komandi helgi líka alveg þéttpökkuð af gleði. Vísindaferð á föstudaginn og svo farið í byen með Betu-spurning hvort við náum að verja titilinn okkar í Fussball??! Á laugardaginn ætla ég svo að halda "Innmælispartý," svona mix af innflutningspartý og afmæli. Ég hlakka ofurmikið til enda langt síðan ég hef haldið almennilega upp á afmælið mitt. Með svona góðum hópi getur heldur ekkert klikkað!

og allir aðrir sem bjórglasi geta mögulega haldið, sameinumst á skrallinu í bænum um helgina, I'm counting on you!!!

skriðinn undir sæng með ís......góðar stundir.

Ældi þessu út úr sér kl. 8:57:09 pm
|úúú bara 7 kvikindi!|  




Previous Page Next Page
Ég og eina fjallaljónið á Íslandi, Tína Turner


And I heard, as it were, the noise of thunder: One of the four beasts saying: "Come and see." And I saw. And behold, a white horse....And I heard a voice in the midst of the four beasts, And I looked and behold: a pale horse. And his name, that sat on him, was Death. And Hell followed with him.


[ Sign my Guestbook ]



Lagið sem ég "ætlaði" alltaf að semja... :

S.o.a.d. - Hypnotize


að skoða síðuna



<< October 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03
04 05 06 07 08 09 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31






   







Myndir





Annað stöff
blog.central.is/maggy
Vélin
H-fleygur
Heima er best
Kind vikunnar
Kvikmynd.is
Apple Trailers
húmor.is
abc.is
Batman
Verahvergi.is




Radíó
XFm
X-ið
Rás 2




Leit







If you want to be updated on this weblog Enter your email here:

rss feed