 |
 |
 |
 |
 |
|
Tuesday, March 14, 2006
Bara til að tilkynna það formlega...
...þá er ég töluvert hætt að blogga í dágóða stund. Aðallega vegna þess að ég hef afskaplega lítið að segja hérna og það litla sem ég vil tjá mig á veraldarvefnum fer í gegnum aðra síðu. Svo er maður líka bara svo ýkt bissí núna og mánuðina framundan. Allsvakaleg námstörn og risaverkefni, Lundúnarferð, framboð, og guð má nú bara vita hvað. Svo er bara allt of góð dagsskrá í Tv-inu til að vera að babbla eitthvað hér. Held að maður hafi ekkert að gera við þessa síðu fyrr en kannski í sumar, þegar maður gerist útlagi og vill halda contactinu við crewið.
Í næsta mánuði verður líka komið eitt ár síðan ég gerði þessa síðu og því er þetta mjög góð tímamót til að hætta með hana. Ég vil þakka þeim krumpudýrum sem eru ábyrg fyrir þeim 9-11000 heimsóknum sem þessi síða hefur fengið á mánuði síðan þá. Hef ekki hugmynd um hver þið eruð en þið eruð öll alveg frábær. Ég skal lofa að heimsækja ykkur öll 9-11000 sinnum í framtíðinni....in person!
Síðan mun líklega hverfa/allavega verða mjög ljót eftir ca. mánuð en þá hætti ég að borga af henni (já maður spanderar peningum og allt í þetta). Svo ekki láta ykkur bregða ef þið poppið inn á hvíta, krumpaða síðu á þessu urli.
Best að halda áfram að hlusta á Euro lög, já nú er sko að hefjast alveg gósentíð fyrir okkur Júróvisjón nördana. Finnarnir eru strax komnir í my personal favorite og þori ég að veðja við mesta gamblara heimsins um að Spánverjar vinni ekki í ár.....þó er svosem aldrei að vita hvernig gamla-júgóslavía eigi eftir að fíla þetta lag, ef lag má kalla!
stay black,
Mth1
Ældi þessu út úr sér kl. 8:11:20 pm
Link it!
Monday, February 13, 2006
já það er ýmislegt sem mér tekst nú að gera til þess að "krydda lífið og tilveruna." Sjúkrasaga mín er ansi gott dæmi um það. Í þau skipti sem ég hef brotnað þá hef ég náð að gera það aaaalveg sjálf-hef ekki getað kennt neinum öðrum um það. Fyrst náði ég að tábrjóta mig eftir leik við Val í 4. flokki kvenna minnir mig. Það var innanhús-Austurlandsmót heima minnir mig. Við gerðum jafntefli við Val og ég var svo brjál yfir því að eftir leikinn dúndraði ég í battann með þeim tilþrifum að ég tábraut mig og það blæddi inn á lið eða eitthvað svolleis. Ég fattaði það reyndar ekki fyrr en eftir að mótið var búið. Svo náði ég að fótbrjóta mig í leik í 3.fl. kvenna. Vorum að spila við Huginn held ég. Þá steig ég eitthvað svo vitlaust niður að ég braut mig í kringum ökklann. Núna hefur mér tekist að bæta enn einu afrekinu við. Ég er búin að vera ansi veik og slöpp núna í 3 vikur og því hefur fylgt mikill hósti.....reyndar svo mikill að ég rifbeinsbraut mig í einu hóstakastinu síðasta föstudagskvöld/nótt!! Ég reyndar fattaði það ekki strax, en fann samt helvíti mikið til neðarlega í bakinu á laugardagsmorguninn. Skrapp samt í gymið og íþróttaskólann og var ekki alveg að meika það að leika við krakkana. Var einmitt að ræða það við Guðrúnu og Maríu í skólanum á laugardaginn að ég hefði örugglega hóstað svo mikið að ég hafði tognað. Um kvöldið var svo aðeins skroppið út á lífið-stelpupartý hjá 2. árinu í Véla-og iðnaðarverkfr.-og var markmiðið þar að drekka nógu ansk...mikið til að deyfa verkinn út af "tognuninni." Spunk-skotflaskan hennar Þóru reyndist vera lifesaver í því....! Í gær ákvað ég svo að skreppa á læknavaktina og láta athuga þetta betur og neinei, þá er þetta bara svona gríðalega fallegt rifbeinsbrot. Svo nú lítur allt út fyrir að ég eigi eftir að vera algjör heimalingur og úða í mig verkjatöflum eins og skittles.
Þessi dæmasaga sýnir það og sannar að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi....og jafnvel þótt hann sé það ekki.....
Ældi þessu út úr sér kl. 10:38:01 am
Link it!
Monday, February 06, 2006
ohmygodohmygodohmygodohmygodohmygod....
ef einhvern tíma hefur verið ástæða til að fara til Svíþjóðar!
Whitesnake spilar á Sweden Rock Festival í sumar!
Goðsagnarhljómsveitin Whitesnake hefur staðfest þátttöku sína á heljarmikilli rokkhátið sem fram fer í Sölvesborg í Svíþjóð í sumar undir nafninu Sweden Rock Festival. Hátíðin fer fram dagana 8.-10.júní og verður margt athyglisverðra hljómsveita í sviðsljósinu. Auk Whitesnake má nefna sveitir á borð við Deep Purple, Journey, W.A.S.P., Krokus, The Jeff Healy Band, Stryper, Molly Hatchet og George Thorogood & The Destroyers.
Þessi þátttaka Whitesnake verður að teljast vatn á myllu skipuleggjenda hátíðarinnar, en David Coverdale og félagar hafa látið heldur lítið fyrir sér fara síðustu misserin. Hljómsveitin stóð í fylkingarbrjósti bresku rokksveiflunnar seint á síðustu öld, svona um það bil sem mýktin fór að gera vart við sig í þungarokkinu, og nýtur enn þann dag í dag talsverðra vinsælda.
Ekki má gleyma því að Whitesnake hélt eftirminnilega tónleika í Reiðhöllinni í Víðidal fyrir nokkrum árum, spilaði þá tvö kvöld í röð en David Coverdale gekk hins vegar ekki heill til skógar og kom ekki fram á síðari tónleikunum. Gítarhetjan Steve Vai lagði þá helmingi meira á sig það kvöldið, auk þess sem Pétur heitinn Kristjánsson söng með Whitesnake og gerði kvöldið algjörlega ógleymanlegt.
ég hef ekki getað lært síðan ég sá þetta-er að skoða flug til Sverige, as we speak. þarf að fara að leggja hausinn í bleyti - það verður annað hvort borgin sem kennd er við Sölva eða Roskilde í sumar, klárt mál!!!!
Ældi þessu út úr sér kl. 3:50:17 pm
Link it!
Saturday, January 28, 2006
töluvert OF langt síðan ég hef skrifað inn á þetta. Enda hefur maður svosem lítið að segja frá, líf mitt er ekkert að bogna undan actioni sko. Svo er kannski pínu rugl að vera að halda úti tveimur síðum svo allt helst þetta nú í hendur þegar kemur að þessu bloggleysi. Eins og glöggir lesendur taka eftir er ég að skrifa þetta rétt fyrir miðnætti á laugardagskvöldi. Nú spyrja menn sig: Hvað er að ske? Af hverju er okkar manneskja ekki í ruglinu að taka lahoja dansinn hjá Háteigskirkjunni??! Jú, á því er ansi einföld skýring-ég náði að klúðra málunum þetta kvöldið með en dejlig pest. Hef verið svona mainly í því að hósta eins og berklasjúklingur og bara virkilega einbeitt mér að því að vera ógeðsleg og það hefur svona heldur betur tekist. Svo hef ég nú kannski ekki verið að bæta það með því að hafa étið ca. 18 kg af nammi og flögum í kvöld-út af pjúra sjálfsvorkunn. Svo nú líður mér eins og ég sé alveg komin á steypirinn og tilbúin að fæða þríbura-hvalina mína sem ég hef geymt með að fæða í 6 ár. Yup, mín alveg helsátt með lífið! Gærkvöldið bjargaðist þó fyrir horn, þá var haldið til Kristínar að horfa á Ísl - Danm. og svo brast á illa öflugt karókípartý. Það þarf svo lítið til að kæta okkur. Hápunkturinn var klárlega þegar við uppgötvuðum að Kinks-slagarinn Lola var á einum af diskunum, en það hefur lengi vel verið einkennislag okkar nörda-píanna. Svo klikkar náttúrulega Boombastic með Shaggy aldrei, á svipstundu breyttist lýðurinn í úber blökkukindur með öllum mmmm-unum og stununum sem eru í þessu lagi. Magnetic sko!
Njehhhh nenni ekki að skrifa meir-úfff hvað þetta eru alltaf gríðar-áhugaverðir pistlar. Finn að Pulitzer verðlaunin eru öll að koma til mín þetta árið. Vildi bara svona rétt minna á að þótt að þessi síða sé í dauðakippunum (allavega eins og er) þá er ég aldeilis bærilega life and kickin' ! Vil svo eindregið mæla með að fólk fari að koma hingað út á land og kíkja í heimsókn á krumpudýrið. Ég gæti allavega boðið ykkur snarbókað upp á kaffi og jafnvel að ég lumi á haframjöli annað slagið svo don't be a stranger!!
Vallý my dear, myndirnar frá síðustu helgi eru komnar inn í sessionið.... .
Maggý-baaaara ógeðsleg.
Ældi þessu út úr sér kl. 11:18:07 pm
Link it!
Sunday, January 15, 2006
pfff...titlar eru bara fyrir gungur!
ég var hálfpartinn búin að gleyma að ég væri með eitthvað blogg-enda manneskjan búin að vera svo ýkt bissí það sem liðið er af þessu ári...eða ég reyni allavega að telja mér í trú um það. 1. vikan búin af skólanum og líst mér bara nokkuð vel á þessa önn. Eðlisfræðiskýrslunar er reyndar ekki eitthvað sem ég hlakka gífurlega til að gera en þetta getur ekki allt verið eintóm sæla. Þrátt fyrir að skólinn sé bara nýbyrjaður höfum við samt farið í nú þegar í eina vísindaferð-stjórn Vélarinnar fær allt mitt respect fyrir það! Fyrsta ferð annarinnar var núna á föstudaginn og húrruðust 80 frískir V&I nemar í KB banka. Kynningin var örugglega bara fín-fjármálamál er eins og hebreska fyrir mér og get ég nú ekki sagt að ég sé brjál spennt fyrir bankageiranum en veitingarnar voru góóóðar....! Liðið skellti sér svo allt á Pravda eins og venja er og voru fyrstu bjórarnir þar drukknir fyrir kl. 8-þið vitið rétt eftir að kastljósið er að enda eða eitthvað þannig. Fljótlega fóru "námsmannadrykkirnir" að segja til sín og man ég ekki eftir að það hafi myndast jafnmikil stemming svona snemma á Pravda. Kvöldið endaði svo í e-u austfirðinga/seyðfirðingapartýi og meiru pöbbarölti, þar ber hæst hið ógleymanlega samtal sem ég og Jón Kolbeinn áttum við e-n róna á Laugarveginum-sá var að vinna að gífurlegu forvarnarstarfi og varaði okkur vilt og galið við áfengisbölinu....þetta er klárlega maður vikunnar að mínu mati!!
Dagurinn í dag hefur verið einn sá tilgangslausasti sem ég hef upplifað. Náði mér í e-ð pestavesen yfir helgina og hef því ekki nennt NEINU, búin að horfa á lots and lots af X-files þáttum, étið 14 kg af nammi og get ekki beðið eftir að pizzan verði orðin brakandi reddí í ofninum.....þetta er lífið!
Læt þetta gott heita í bili. Held svo að ég fari að hætta þessum bloggbusiness með hækkandi sól.... .
Ladies, ég er í því að skella inn nokkrum myndum af próflokadjamminu. Ég set ekki allar myndirnar inn-afgangurinn verður bara að bíða eftir næsta spilakvöldi-hehe hver veit nema við náum meira að segja að spila eitthvað þá! ;)
p.s. kvinnen hefur ákveðið, í samstarfi við Betuna og Lake MyvaTEN búana, að fara á Hróarskeldu í sumar-hvet alla til að joina oss í einskærri gleði í júní.
Jöra
Ældi þessu út úr sér kl. 5:37:34 pm
Link it!
Thursday, December 29, 2005
headphones.....höfuð-símar??!
jæja, Kempan loksins komin á heimaslóðirnar-Kárahnjúkarnir mínir standa alltaf fyrir sínu. Kom hingað uppeftir í fyrradag eftir að hafa skellt mér á eitt stykki dansiball í Egilsstaði kvöldinu áður. Ballið var bara fínasta skemmtun og ekki búið fyrr en um half 5 held ég. MInnir að ég hafi dansað mest allt ballið með bindi um hausinn eins og rambó en ég efast ekki um að það hafi farið vel við pinnahælana og bling-blingið, alltaf svo mikil lady! Svo vill nú svo skemmtilega til að ég hef eitthvað náð að slasa mig, vaknaði allavega með BLÁAN hægri upphandlegg (ég hef aldrei á ævi minni séð jafn stóra marblettaklessu), bólgið bak og önnur ristin á mér er helblá á nokkrum stöðum. Þeir sem geta útskýrt hvaða stunt ég hef verið að taka þarna, vinsamlegast hafið samband-ég get það allavega ekki! Ég vil svo tilnefna Brynju partýpinna kvöldsins-hún var alveg með'ða þetta kvöldið.
Anyway....var mætt upp í the hnjúks í fyrradag og hunskaðist til að klára greinina um Indlandsferðina. Eftir það hefur lífið bara verið ljúft hér. Það er afskaplega rólegt hérna núna og eitthvað lítið um action á skrifstofunni. Fengum reyndar alveg furious veður hérna í fyrrakvöld, mér var eiginlega vaggað bara í svefn af spinnigal rokinu sem dundi úti. Annað lítið bitastætt búið að gerast. Jú sá að ég er loksins komin í e-a áfanga fyrir næstu önn. Brillinn hún Maggý sá það á jóladagskvöldi að hún væri ekki skráð í neina áfanga fyrir næstu önn (þrjú rokkstig fyrir mig) svo ég sendi ótrúlega hjartnæmt og fallegt email á nemendaskránna sem hefur greinilega virkað. Finndist ekkert furðulegt ef þau væru ennþá að berjast við táraflóðið eftir að hafa lesið mailið, það var svo einlægt. En eitthvað ætla einkunnirnar að láta standa á sér fyrir önnina sem var að líða. Dreymdi í nótt að ég hefði fallið í öllum áföngunum sem ég tók þessa önnina, fékk t.d. 7/2 í einkunn fyrir aflfræði-nokkuð furðuleg einkunnagjöf en mér er nú ekkert sama að ég hafi verið að dreyma þetta. En ég var svo sem líka að berjast við gulan fairytale-dreka, með bauju eina að vopni, á sjómannadegi heima í þessum draumi svo ég tek þessu nú öllu með fyrirvara.
Já bara 2 dagar í áramót, úúúú hvað ég get ekki beðið! Ég myndi segja að ég væri töluvert meira áramótabarn heldur en jólabarn enda eru þau haldin með pompi og prakt í familíunni. Það er búið að vera að safna í flugeldasjóð allt árið (já, við erum pínulítið kreisí þegar kemur að þessum rakettum) og er upphæðin sem verður sprengt upp orðin fáránleg. Gegnum árin höfum við stórfjölskyldan alltaf haldið vel öflug partý á þessum tímamótum og eru sumir að missa sig í undirbúningnum fyrir þetta árið. T.d. er búið að græja bjórkúta og dælu fyrir kvöldið......en það gagnast mér svo sem ekki þar sem ég drekk ekki..... .
Hei já, búðin hjá Ítölunum er opin núna, ætla að skjótast smá rúnt í sjoppuferð og tjékka á stemmaranum á IGL skrifstofunni. Blogga líklegast ekkert fyrr en á næsta ári svo
gleðilegt nýtt ár klemmurnar mínar!!!!
mth1
Ældi þessu út úr sér kl. 9:16:17 am
Link it!
Friday, December 23, 2005
góðakvöldið essskurnar. Prófin loksins afstaðin, búin að taka þetta skrautlega en samt geggjaða próflokadjamm og meira að segja komin heim í fjörðinn fagra og bíð bara spennt eftir að klukkan slái 6 á morgun. Ég ætla að setja e-ð af myndunum sem ég tók af próflokadjamminu inn á síðuna en get það ekki strax þar sem ég gleymdi satans snúrunni til að unloada myndunum á tölvuna. Það vill líka svo skemmtilega til að ég og önnur stelpa svissuðum á veskjum á einhverjum tímapunkti á djamminu, sem þýðir að ég er búin að vera töluvert símalaus, peningalaus, og bara you-name-it laus síðan þá (tvö rokkstig fyrir mig!). Vona samt svo heitt og innilega að ég fái veskið með flugfrakt á morgun, það að vera símalaus er eins og að vanta eina hönd og tvö hné!
En ætla ekki að blogga neitt af viti núna, bara segja gleðileg jól til allra krumpudýranna minna og vona að þið eigið eftir að hafa það rosa gott um hátíðarnar. Þótt það sé baaaara yndislegt að vera kominn heim þá hlakka ég mjög mikið til að koma suður aftur á nýju ári og halda fallega endurfundi með uppáhaldsliðinu mínu öllu saman! Spurning um að byrja góða önn á partýi á Þórðarsveignum??!
Jólakvehehehheeeeeeðjur,
Maggý
Ældi þessu út úr sér kl. 9:45:39 pm
Link it!
Monday, December 05, 2005
oh Indians, gotta luuuuv them! :)
Indverjar eru alveg með'ða þegar kemur að því að skrifa nafnið mitt.
Meðan ég var úti á námskeiðinu komu skipuleggjendurnir til mín á hverjum degi og báðu mig að sýna þeim hvernig ætti að skrifa nafnið mitt. Eftir marg,marg,margendurteknar tilraunir til að fá þá til að skrifa þetta rétt endaði ég með að heita Maggret Prznndottir frá Reykeykjavík-Lceland og bjó meira að segja á Thordarsveiveigi 11. En þeim hefur enn einu sinni tekist að gefa mér nýtt nafn í email-skrifunum. Nú kalla þeir mig Magret Jöra Pörarinsdöttir!! Mér finnst þetta vera svo hrikalega smellið að ég hef hér með tekið upp nýtt nafn. Sel gömlu góðu Margréti Jónu hæstbjóðanda!
Indverjar eru reyndar líka með lúmskan húmor þegar kemur að mannanöfnum, ónei þeir heita sko ekki allir bara Akhbar og Rajat. T.d. heita gaurarnir sem eru í Shanghai-2006 ráðinu með mér Ghosh (hann tók það mjög skilmerkilega fram að þetta ætti ekki að vera ghost....sure buddy!) og hinn heitir Teparti (sá var nú mjög snögglega endurskírður af okkur útlendingunum: Teaparty).
með þessu litla fróðleikshorni um nafnagiftir kveð ég að sinni, eeeen
vil minna tjellingarnar á að það er ekki nema 6 mánuðir í næsta svona viðburð:

....svo það er ekki seinna vænna en að fara að plana hátíðarhöldin! Beta, ég er með KORTIÐ!!!!!!! :)
mbk.,
Jöra Pöra
Ældi þessu út úr sér kl. 8:23:22 pm
Link it!
Wednesday, November 30, 2005
das (Bin) Laden er alveg málið!
Ég sver það, afhverju var ég ekki farin að stunda bókhlöðuna fyrir löngu síðan?! Það er svo þægilegt að læra þarna og maður æðir alveg áfram. Ég gleymdi meira að segja að borða í dag því ég var á svo miklu spani í efnafræðinni. Þetta er líka svo fínt að hafa alla hina í kringum sig, allir niðursokknir í bækurnar, þá er maður ekki eins einn í "volæðinu." Ég hef líka hitt alveg fullt af fólki þarna sem ég hef ekki hitt síðan í sumar ef ekki lengra síðan svo ég er vel sátt. Ætla að flytja lögheimilið mitt þangað nú þegar prófatörnin byrjar svo ef einhver vill fá íbúðina mína then it's fine by me!
Get ekki beðið eftir að fara heim í jólafrí! Hitta Túngötufólkið og knúsa Tinu Turner í tætlur. Fáskrúðsfjörðurinn fyllist aftur af fólki sem verður alveg magnað að fara að tjútta með aftur. Spurning hvar partýstaðurinn verður nú þegar Hótelið er lokað......? Var að frétta að það væri verið að taka allt húsið heima í gegn og að þvílíkar breytingar væru komnar núna svo ég er mjög spennt að sjá útkomuna. Svo til að stytta tímann í heimför ætla ég að kæfa mig í bókum og vera massadugleg í próflestri.
Milklu fargi var létt af mér í dag þegar ég kom fjármálunum mínum loksins í gott stand. Var að gera upp ferðina út og sá að ég hafði ekki eytt jafnmiklu og ég hélt. Sá að hringurinn minn var ekki aaaalveg jafn viðurstyggilega dýr og ég hafði haldið svo ég vel sátt við það. Finnst líklegt að ég komist af næstu önn líka án námslána, en ég ætla líka að reyna að bæta við mig vinnu, fara svona helgi og helgi austur á fjöllin sem gefur mér líka tækifæri til að kíkja heim oftar svo það er ekkert nema gott mál.
Æj ætla að skreppa út á smá rúnt áður en So you think you can dance byrjar. Ég er með gríðarlegan soft spot fyrir 2 guttum í þessum þáttum svo ég má ekki missa af einum einasta þætti! Ef ég ætti eina ósk þá væri það að dansa við þá villtan tangó fram í rauðan dauðan, já báða í einu helst! ;)
Mth1-out!
Ældi þessu út úr sér kl. 8:46:03 pm
Link it!
Saturday, November 26, 2005
á ystu nöf................
svo ég opinberi nú heimsku mína, hvernig fjarlægi ég lög af Ipodinum?????? Ég er búin að reyna allt sem í mín þekking leyfir (sem er greinilega ekki margt) en alltaf skal e-ð lag með Gleðisveit Ingólfs poppa upp í shuffle-inu......ef ég heyri það einu sinni enn þá hendi ég niður á mig öllum bókahillunum hér á Bókhlöðunni!
Held að leyndum bænum mínum hafi verið svarað nú fyrir stuttu, þar sem ég virðist vera "tilneydd" til að skella mér á nett tjútt í kvöld. Held að straumurinn stefni á New Danish á Nasa og ég heeeeka ekki við að fylgja með. Með þessu ætla ég að slá botn í djammdagskránna hjá mér fram að próflokadjammi.
en krakkar, plís-verð að fá hjálp með að tortíma þessu $%&$%##&%#$ lagi af ipodinum, my life depends on it.
Mth1
já bæ ðe vei, það uppgötvaðist í gærkvöldi hver hafði greinilega fengið "lookið" af okkur systrunum, Minimonster kosin Ungfrú ME og óska ég henni aftur til hamingju með það. Veit ekki hvort hún muni eftir því að hafa talað við mig í gær og því kem ég mínu máli á framfæri hér.
Ældi þessu út úr sér kl. 1:38:30 pm
Link it!
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
 |
 |
 |
 |
 |
[ Sign my Guestbook ]
Lagið sem ég "ætlaði" alltaf að semja... :

|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
|
 |