|
Get ekki beðið eftir að fara heim í jólafrí! Hitta Túngötufólkið og knúsa Tinu Turner í tætlur. Fáskrúðsfjörðurinn fyllist aftur af fólki sem verður alveg magnað að fara að tjútta með aftur. Spurning hvar partýstaðurinn verður nú þegar Hótelið er lokað......? Var að frétta að það væri verið að taka allt húsið heima í gegn og að þvílíkar breytingar væru komnar núna svo ég er mjög spennt að sjá útkomuna. Svo til að stytta tímann í heimför ætla ég að kæfa mig í bókum og vera massadugleg í próflestri. Milklu fargi var létt af mér í dag þegar ég kom fjármálunum mínum loksins í gott stand. Var að gera upp ferðina út og sá að ég hafði ekki eytt jafnmiklu og ég hélt. Sá að hringurinn minn var ekki aaaalveg jafn viðurstyggilega dýr og ég hafði haldið svo ég vel sátt við það. Finnst líklegt að ég komist af næstu önn líka án námslána, en ég ætla líka að reyna að bæta við mig vinnu, fara svona helgi og helgi austur á fjöllin sem gefur mér líka tækifæri til að kíkja heim oftar svo það er ekkert nema gott mál. Æj ætla að skreppa út á smá rúnt áður en So you think you can dance byrjar. Ég er með gríðarlegan soft spot fyrir 2 guttum í þessum þáttum svo ég má ekki missa af einum einasta þætti! Ef ég ætti eina ósk þá væri það að dansa við þá villtan tangó fram í rauðan dauðan, já báða í einu helst! ;) Mth1-out! |
| Maggý December 5, 2005 08:59 PM PST uss ég sver það, þetta lið! Maður skilur þau eftir í sveitinni eins og eitt misseri og þau verða bara spinnigal! Hefuru enga stjórn á þessu þarna heima?! ;) En það styttist óðfluga í jólafrí...þangað til ætla ég að láta eins og óð fluga.....heeeeeheeeeeheeee, fimmaura brandari frá helvíti en ég veit að þú fílar þá!! Hringdu við tækifæri-slúðrum aðeins! | ||
| Brynja December 5, 2005 08:11 PM PST Já það eru miklar breytingar heima skal ég segja þér.. þau gömlu eru komin með kaupadellu nr 1 en það er orðið rosalega flott heima.. það eru konar hurðir fyrir niðri þannig að nú getur maður loksins skellt hurðum þarna niðri þó að maður hafi örugglega gert tilraun áður að skella.. En farðu að koma þér austur kjelling | ||
| Leave a Comment: |