Entry: oh Indians, gotta luuuuv them! :) Monday, December 05, 2005



Indverjar eru alveg með'ða þegar kemur að því að skrifa nafnið mitt.

Meðan ég var úti á námskeiðinu komu skipuleggjendurnir til mín á hverjum degi og báðu mig að sýna þeim hvernig ætti að skrifa nafnið mitt. Eftir marg,marg,margendurteknar tilraunir til að fá þá til að skrifa þetta rétt endaði ég með að heita Maggret Prznndottir frá Reykeykjavík-Lceland og bjó meira að segja á Thordarsveiveigi 11. En þeim hefur enn einu sinni tekist að gefa mér nýtt nafn í email-skrifunum. Nú kalla þeir mig Magret Jöra Pörarinsdöttir!! Mér finnst þetta vera svo hrikalega smellið að ég hef hér með tekið upp nýtt nafn. Sel gömlu góðu Margréti Jónu hæstbjóðanda!

Indverjar eru reyndar líka með lúmskan húmor þegar kemur að mannanöfnum, ónei þeir heita sko ekki allir bara Akhbar og Rajat. T.d. heita gaurarnir sem eru í Shanghai-2006 ráðinu með mér Ghosh (hann tók það mjög skilmerkilega fram að þetta ætti ekki að vera ghost....sure buddy!) og hinn heitir Teparti (sá var nú mjög snögglega endurskírður af okkur útlendingunum: Teaparty).

með þessu litla fróðleikshorni um nafnagiftir kveð ég að sinni, eeeen
 
vil minna tjellingarnar á að það er ekki nema 6 mánuðir í næsta svona viðburð:



....svo það er ekki seinna vænna en að fara að plana hátíðarhöldin! Beta, ég er með KORTIÐ!!!!!!! :)

mbk.,

Jöra Pöra

   4 comments

Maggý
December 16, 2005   05:08 PM PST
 
það verður að bíða betri tíma, þú verður bara að heyra stórtíðindin þegar ég kem heim ;) Þangað til....respect!
Brynja
December 15, 2005   01:56 PM PST
 
Komdu með eitt gott blogg stelpa
Maggý
December 9, 2005   10:31 PM PST
 
líst vel á Laugamótið-count me in bara :) Ég væri sko til í að leigja bústað eins og á afm. hennar Ollu í fyrra-shiiiiiiiiit hvað það var mikils skandalsdjamm-þetta fer að verða árlegur viðburður! Þarf líka að fara að bæta eigið íslandsmet í fjölda uppkasta milli Ak. og Fásk svo allt er þetta að smella saman múhahah. ég mæti á jólagleðina næstu helgi-get ekki afþakkað partýkvöld í Viðey með uppáhaldsfólkinu mínu-upphafsatriði: Se-kúdustadardansinn og kortið!!! ;)
beta
December 9, 2005   02:34 PM PST
 
Jöra Pöra, það er nokkuð nett! já það er sko ekki seinna vænna en að byrja að plana þennan stórviðburð, ég er sammála því... hinsvegar erum við að vonast til að geta keppt á laugamótinu sem verður líklega í jan eða feb, þannig að við myndum gera e-ð meira úr því og sletta aðeins úr klaufunum, vonandi sæir þú þér fært að mæta! spurning um að leigja bústað eins og þarna um árið...
en að öðru, hérna eru allir að missa sig úr spenningi yfir jólagleðinni og ég hlakka nú bara til að hitta þig og geri ráð fyrir að þú mætir með kortið góða!

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments