|
góðakvöldið essskurnar. Prófin loksins afstaðin, búin að taka þetta skrautlega en samt geggjaða próflokadjamm og meira að segja komin heim í fjörðinn fagra og bíð bara spennt eftir að klukkan slái 6 á morgun. Ég ætla að setja e-ð af myndunum sem ég tók af próflokadjamminu inn á síðuna en get það ekki strax þar sem ég gleymdi satans snúrunni til að unloada myndunum á tölvuna. Það vill líka svo skemmtilega til að ég og önnur stelpa svissuðum á veskjum á einhverjum tímapunkti á djamminu, sem þýðir að ég er búin að vera töluvert símalaus, peningalaus, og bara you-name-it laus síðan þá (tvö rokkstig fyrir mig!). Vona samt svo heitt og innilega að ég fái veskið með flugfrakt á morgun, það að vera símalaus er eins og að vanta eina hönd og tvö hné! En ætla ekki að blogga neitt af viti núna, bara segja gleðileg jól til allra krumpudýranna minna og vona að þið eigið eftir að hafa það rosa gott um hátíðarnar. Þótt það sé baaaara yndislegt að vera kominn heim þá hlakka ég mjög mikið til að koma suður aftur á nýju ári og halda fallega endurfundi með uppáhaldsliðinu mínu öllu saman! Spurning um að byrja góða önn á partýi á Þórðarsveignum??!
Jólakvehehehheeeeeeðjur, Maggý |
| Maggý December 29, 2005 10:50 AM PST þarna er ég að þekkja ykkur sykurpúðar! Þá er það hér með ákveðið-eitt stk. teiti þegar við dreifararnir verða komnir í byen. Ég bara get ekki betttt! ;) | ||
| Þóra December 27, 2005 12:51 PM PST Líst svaka vel á partýhugmyndina! Gleðileg jól og hafðu það gott. P.S. Þú færð fullt af rokkstigum fyrir próflokadjammið. | ||
| Marsibil December 25, 2005 06:20 PM PST Gleðileg jól skvísa og takk fyrir árið! :) | ||
| Lára María December 24, 2005 12:09 PM PST Ójá ég er sko geim í partý líka:) gleðileg jólin Maggý mín og hafðu það sem allra allra best heima í landsbyggðarsælunni;) | ||
| Linda Sæberg December 24, 2005 02:26 AM PST Gleðileg jól elzkan og vona svo fullt að ég eigi eftir að hitta þig um jólin.. oooog langt síðan síðast! | ||
| Guðrún December 23, 2005 10:54 PM PST Ég mæti í partý sko:) Ég verð nebbla að skoða íbúðina svo tvöföld ástæða, hafðu það gott og GLEÐILEG JÓL :) | ||
| Leave a Comment: |