|
ef einhvern tíma hefur verið ástæða til að fara til Svíþjóðar! Whitesnake spilar á Sweden Rock Festival í sumar! Goðsagnarhljómsveitin Whitesnake hefur staðfest þátttöku sína á heljarmikilli rokkhátið sem fram fer í Sölvesborg í Svíþjóð í sumar undir nafninu Sweden Rock Festival. Hátíðin fer fram dagana 8.-10.júní og verður margt athyglisverðra hljómsveita í sviðsljósinu. Auk Whitesnake má nefna sveitir á borð við Deep Purple, Journey, W.A.S.P., Krokus, The Jeff Healy Band, Stryper, Molly Hatchet og George Thorogood & The Destroyers. Þessi þátttaka Whitesnake verður að teljast vatn á myllu skipuleggjenda hátíðarinnar, en David Coverdale og félagar hafa látið heldur lítið fyrir sér fara síðustu misserin. Hljómsveitin stóð í fylkingarbrjósti bresku rokksveiflunnar seint á síðustu öld, svona um það bil sem mýktin fór að gera vart við sig í þungarokkinu, og nýtur enn þann dag í dag talsverðra vinsælda. Ekki má gleyma því að Whitesnake hélt eftirminnilega tónleika í Reiðhöllinni í Víðidal fyrir nokkrum árum, spilaði þá tvö kvöld í röð en David Coverdale gekk hins vegar ekki heill til skógar og kom ekki fram á síðari tónleikunum. Gítarhetjan Steve Vai lagði þá helmingi meira á sig það kvöldið, auk þess sem Pétur heitinn Kristjánsson söng með Whitesnake og gerði kvöldið algjörlega ógleymanlegt. ég hef ekki getað lært síðan ég sá þetta-er að skoða flug til Sverige, as we speak. þarf að fara að leggja hausinn í bleyti - það verður annað hvort borgin sem kennd er við Sölva eða Roskilde í sumar, klárt mál!!!! |
| Sjonni February 28, 2006 09:01 PM PST Whitesnake og Journey rokka :P | ||
| Maggý February 13, 2006 10:37 AM PST heyrðu þá er það bara ákveðið-ég og þú til Svíþjóðar í júní! | ||
| unnsinn February 10, 2006 02:14 AM PST ég er til í sölvann | ||
| Maggý February 7, 2006 06:27 PM PST hei ég tók þetta svona pent orðrétt af síðu xfm-en ég ætla hér með að setja þetta í orðabókina mína-manns hljómar svo sivilized með nokkur svona orðtök! Hvíti snákurinn er draumurinn-gamlir glysrokkarar sem eru við það að rokka úr sér allt vit-mín týpa!! :) | ||
| vally February 7, 2006 01:23 PM PST Margrét..."vatn á myllu skipuleggjanda"...gamla gamla mín:) | ||
| Hinrik February 7, 2006 09:47 AM PST ussufuss, hvaða heilvita maður vill fara og kynnast borg sem kennd er við Sölva einhvern. Ég held að Roskilde festival hljómi ansi vel, sérstaklega ef Radiohead ætla að spila. Ég held að það sé ekki spurning... | ||
| Leave a Comment: |